Skilmálar
1.gr Almennt
1.1 Skilmálar þessir gilda um alla þjónustu sem viðskiptavinur fær afhenta frá Vefhýsing ehf. (hér eftir nefnt hýsa.is). Við áskrift skuldbindur viðskiptavinur sig til þess að hlíta þeim skilmálum sem hýsa.is setur um kjör og notkun þjónustunnar.
1.2 Hýsa.is veitir hýsingar- og almenna tölvuþjónustu til einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja gegn gjaldi undir nafninu Vefhýsing ehf. Viðskiptavinir skulu vera fjárráða og ekki vera í eldri vanskilum hjá hýsa.is. Reikningar eru sendir út í gegnum Vefhýsing ehf og eru þeir merktir hýsa.is.
1.3 Uppsetning á internethugbúnaði eða stillingum í tölvu notanda er ekki innifalin í hýsingarþjónustu við hýsa.is. Útköll vegna þjónustu við hýsingarþjónustu skulu vera samkvæmt gildandi gjaldskrá hýsa.is hverju sinni.
1.4 Misnotkun á hýsingaraðganginum eða heimasvæði, s.s. birting eða fjöldadreifing ósiðlegs, ólöglegs eða ærumeiðandi efnis varðar við lög. Áskrifanda er óheimilt að vista á heimasvæði sínu efni sem brýtur í bága við íslensk lög. Vistun á torrent skrám, hvort sem um ræðir margmiðlunarefni eða hugbúnað til að sækja gögn sem varin eru af höfundarrétti á vefsvæðum er stranglega bönnuð.
1.5 Heimilt er að synja aðila fyrirfram um reikningsviðskipti ef viðskiptavinur er á vanskilaskrá Vefhýsing ehf eða á öðrum almennum vanskilaskrám. Vefhýsing ehf hefur heimild til þess að fara fram á að viðskiptavinur leggi fram tryggingu fyrir öllum gjöldum vegna notkunar á þjónustu. Sama gildir um hvers konar félög og samtök ef svo háttar til um forsvarsmenn viðkomandi félags eða samtaka.
1.6 Skilmálar þessir teljast samþykktir og gagnkvæmur samningur kominn á ef eitthvert af eftirfarandi skilyrðum hefur verið uppfyllt:
- 1.6.1 Viðskiptavinur hefur samþykkt kaup á þjónustu.
- 1.6.2 Viðskiptavinur hefur hafið notkun á þjónustu.
2.gr Notkun
2.1 Ef viðskiptavinur fær úthlutað aðgangi sem samanstendur notendanafni og leyniorði inn á hýsingarsvæði að þá gilda eftirfarandi reglur:
- 2.1.1 Aðgang þennan má einn sá nota sem um hann sækir. Umsækjandi er ábyrgur fyrir aðganginum.
- 2.1.2 Það er með öllu óheimilt að afhenda lykilorð sitt öðrum aðila.
2.2 Viðskiptavinur ber ábyrgð á að notkun þjónustu sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir á hverjum tíma.
2.3 Viðskiptavini er óheimilt að trufla, skerða eða á annan hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina, t.d. með fjöldapóstsendingum eða óhóflegum gagnaflutningum.
2.4 Óleyfilegt er að keyra hverskonar forrit svo sem Proxy, SeedBox, námugröft (crypto mining) og annað sem veldur álagi og niðurhali á þjónustu sem hýsa.is býður uppá.
2.5 Áskrifanda ber að öllu leyti að virða þær umgengnisreglur sem settar eru áskrifendum á internetinu, þ.m.t. reglur sem gilda á öðrum hlutum þess og þær notkunarreglur sem heildarsamtök aðila að internetinu setja.
2.6 hýsa.is áskilur sér rétt til að takmarka eða loka á þjónustu til rétthafa þjónustu tímabundið eða ótímabundið verði hann uppvís að misnotkun á þjónustu.
2.7 Vefhýsing ehf. áskilur sér allan rétt til að slökkva á eða hamla notkun á þjónustu áskrifanda, tímabundið eða endanlega, ef Vefhýsing ehf. álítur að:
- 2.7.1 Notkun áskrifanda á þjónustunni valdi, eða geti valdið, truflunum á rekstri þjónustu annarra notenda.
- 2.7.2 Vefur eða þjónusta áskrifanda hafi verið „hökkuð" eða sé af einhverjum ástæðum undir stjórn annarra en áskrifanda sjálfs.
- 2.7.3 Fari umferð á vefsvæði yfir það sem eðlilegt getur talist, að mati sérfræðinga, skal endurskoða lausnina sem notast er við og viðeigandi þjónustupakki settur upp.
- 2.7.4 Að verið sé að brjóta lög eða siðferðisviðmið sem Vefhýsing ehf. telur eðlilegt að gera kröfu um að virt séu af áskrifendum hverju sinni.
3.gr Greiðsluskilmálar
3.1 hýsa.is mun birta opinberlega gjaldskrá fyrir þjónustu á hverjum tíma. Rétthafi getur nálgast gjaldskrána á vefsíðunni www.hysa.is. hýsa.is getur breytt gjaldskrá fyrir áskrift að hýsingarþjónustu og eða öðrum áskriftarskilmálum með eins mánaðar fyrirvara.
3.2 Skráður rétthafi ber ábyrgð á greiðslum til hýsa.is / Vefhýsing ehf. vegna notkunar sem á sér stað. Vefhýsing ehf. sendir út reikninga fyrir hönd hýsa.is. Öllum fyrirspurnum er varðar reikningamál er svarað með því að senda fyrirspurn á bokhald@hysa.is.
3.3 Aukaverk teljast öll verk sem ekki falla innan samnings. Slík verk eru háð sérstöku samkomulagi á milli aðila og eru reikningsfærð sérstaklega samkvæmt tímagjaldi.
3.4 Önnur gjöld eru uppfærð reglulega samkvæmt breytingum á neysluverðsvísitölu.
3.5 Gjalddagi þjónustu er fyrsti dagur hvers mánaðar.
3.6 Eindagi reiknings er 14 dögum eftir gjaldaga. Sé reikningur greiddur eftir eindaga, ber viðskiptavin að greiða dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags auk kostnaðar við innheimtu.
3.7 Athugasemdir skulu gerðar við útgefna reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga, ella telst reikningur samþykktur.
3.8 hýsa.is (Vefhýsing ehf.) áskilur sér rétt til að loka fyrir þjónustu 30 dögum eftir að eindagi er liðinn.
3.9 Hafi vanskil viðskiptavinar varað í a.m.k. 90 daga frá eindaga og heildarskuld er a.m.k. 30.000,- að frátöldum vöxtum og kostnaði, áskilur hýsa.is (Vefhýsing ehf.) sér rétt til að tilkynna nafn viðskiptavinar á vanskilaskrá Creditinfo Ísland (Lánstraust).
4.gr Annað
4.1 Uppsögn á þjónustu miðast við mánaðarmót og skal hafa borist hýsa.is með skriflegum hætti á netfangið bokhald@hysa.is a.m.k. 10 dögum fyrir mánaðarmótin sem uppsögn skal taka gildi.
4.2 hýsa.is (Vefhýsing ehf.) ábyrgist hvorki tjón sem skapast vegna notkunar viðskiptavinar eða þriðja manns á þjónustu hýsa.is (Vefhýsing ehf.) né tjón sem búnaður þess kann að valda.
4.3 hýsa.is (Vefhýsing ehf.) áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála án fyrirvara ef þörf krefur.
4.4 hýsa.is (Vefhýsing ehf.) áskilur sér rétt til að senda viðskiptavinum póst, bréf og/eða tölvupóst með tilkynningum er varða þjónustuna.
4.5 hýsa.is (Vefhýsing ehf.) áskilur sér rétt til þess að eyða gögnum viðskiptavinar ef reikningar hafa ekki verið greiddir samfellt í 3 mánuði.
4.6 Brot á ofangreindum skilmálum getur valdið tafarlausri lokun á þjónustu.
4.7 Öll mál, sem rísa kunna vegna brota á þessum samningi skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Þjónustuskilmálar voru síðast uppfærðir 15. október 2025.